BAKKAGERÐISBIBLÍAN

08.11.2007 20:09:49 / gislina

Gillí

Okkar ástkæra Gillí lést í morgun.

Hjartans þakkir fyrir vináttu og stuðning við hana.

Fjölskyldan


» 43 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 19:49:26 / gislina

Fréttir af Gillí - 07 nóvember 2007

Komið þið sæl

Ég ákvað að setja hér inn smá færslu og reyna að upplýsa ykkur um ástand Gillíar.
Hún er ennþá mikið veik og því má segja að allt sé við það sama. 
Það var fundur í dag með krabbameinslækninum hennar og á honum var ákveðið að hún yrði sennilega færð yfir á krabbameinsdeild Landsspítalans á morgun, þetta var hennar eigin ósk.
Hún óskaði einnig eftir því að fá lyf til að hjálpa sér að sofa en það hefur gengið erfiðlega undanfarnar nætur og vonum við að hún nái nú að hvílast almennilega í kvöld og í nótt.

Hún veit af ykkur, það hafa verið lesin fyrir hana comment og einnig gerir hún sér grein fyrir að þið eruð öll að fylgjast með.  Ég vil biðja ykkur um að halda áfram að senda henni ykkar allra bestu hugsanir og bænir til að styrkja hana sem mest á þessum erfiðu dögum.

kveðja
Ragna mágkona


» 18 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 21:31:22 / gislina

Fréttir af Gillí 3. nóv 2007

Eins og áður hefur komið fram þá er ástand Gillíar alvarlegt en mikilvægt er fyrir ykkur að vita að hún er með meðvitund og ekki kvalin. Í dag var fjölskyldufundur þar sem mættu nánustu aðstandendur til að ræða við lækninn og sjúkrahúsprestinn um ástand Gillíar. Þetta var fróðlegur fundur og allir sáttir við að vita allt sem vita þarf og geta með því verið áframhaldandi stuðningur við Gillí. Starfsfólk líknardeildarinnar mælti með að aðeins nánustu aðstandendur skyldu koma í heimsókn og einnig var sett upp vaktaplan til að tryggja að Gillí sé aldrei alein, sé alltaf með einhvern náinn hjá sér.
Sjúkrahúspresturinn mælti með því að fólk kæmi áleiðis kortum og bréfum með fallegum kveðjum til Gillíar með því að láta einhvern úr fjölskyldunni hafa þau eða skilja eftir við móttökuna á líknardeildinni.

Ragna mágkona og Rósa systir


» 16 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 20:05:04 / gislina

Fréttir af Gillí, 01. nóv 2007

Góðir blogg-gestir

Gíslína liggur frekar þungt haldin á líknardeildinni þessa dagana. Hún er því ekki til viðtals, hvorki til heimsókna né hringinga.

Hlýjar hugsanir og fyrirbænir eru vel þegnar.

Rósa systir og Ragna mágkona

 


» 23 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 10:29:42 / gislina

Gillí bað mig um að segja ykkur.................

Gillí sendi mér sms í morgun og bað mig koma upplýsingum á framfæri.

Hún er á leiðinni á Landspítalann í aftöppun. Það á að stinga á lungun tappa af og síðan á að reyna að setja dren í kviðinn. Hún getur af þeim sökum ekki tekið á móti heimsóknum í dag né tekið við símtölum. Að auki er raddleysið farið að há henni og veitir því ekki af hvíldinni.

Bestu kveðjur til ykkar allra
Ragna Mágkona


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 20:32:51 / gislina

Fréttir af Gillí

Komið þið sæl

Gillí bað mig um að koma smá pistli á framfæri.
Nú - hún er í hvíldarinnlögn þessa dagana og vinnur hörðum höndum að því að hvíla sig og safna kröftum.  Hún er reyndar frekar ílla haldin af mæði sem tekur mikinn kraft frá henni. Hún á von á því að fara í aftöppun á morgun og verður þá vonandi hressari.

Hún vildi líka minnast á að það er orkufrekt að blogga og þó að pistlarnir komi stopult þá sé óþarfi að hafa áhyggjur.  Ég mun þá reyna að koma á framfæri því helsta sem er í gangi.

kveðjur
Ragna Mágkona


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 14:40:29 / gislina

Heim í heiðardalinn

Kæru bloggvinir og aðrir vinir og vandamenn, takk innilega fyrir allar góðu kveðjurnar til mín, þið eruð ómetanlegur stuðningsher.

Komin heim af spítalanum eftir fjögurra daga dvöl. Líður eins og blöðru í barnaafmæli sem búið er að stinga gat á. Sit hér með tölvuna og súrefnisgræju í nefinu og frammi malar nýjasta húsgagnið (súrefnisvélin) eins og her af ánægðum köttum.  Ég er móð og slöpp og hef enga orku en vonandi kemur hún smátt og smátt. Ég verð þó að passa að eyða ekki meiru en ég afla því til að halda mér á floti verð ég að vera duglega að hvíla mig.

Ég fór á spítalann á sunnudaginn til að láta athuga hvort ég væri með blóðtappa í hægra fæti neðan ökkla. Í staðin fundu þeir stóran blóðtappa í æð í lunganu. Meðan ég lá á bráðamóttökunni á sunnudaginn hef ég sennilega skilað vatni í lítratali því á mánudaginn var allur bjúgur horfinn af fótunum.  Þá varð mér ljóst að ég hefði sennilega ofgert mér um helgina og þyrfti augljóslega að draga saman seglin til að halda bjúgnum í burtu.

Svo var tappað af mér slatta af vökva, 1,1 úr bakinu og 1,6 úr kviðnum, ég mjókkaði því um miðjuna um nokkra sentimetra og gat loksins setið og hreyft mig nokkuð eðlilega. Þegar þessu var lokið tóku að sjálfsögðu við ný vandamál, það er ekki slegið slöku við hjá heilsuskrattanum sem reynir hvað hann getur að fella mig í glímunni. Þvagið tók upp á að pota í mig með sviða og tilhreyandi og garnirnar hættu að hreyfa sig. Núna er ég komin á leysandi og vona að nýja þenslan losni sem fyrst.

Agnes læknir minnti mig á að fara rólega, eiginlega ætti að pakka mér inn í bómull og ég og aðrir þyrftu að átta sig á að ég væri mikið veik. Ég held að þarna hafi ég áttað mig á að núna verð ég að fara að sinna mér, þiggja hjálp og ganga ekki fram af mér í því að reyna að lifa eins og fullfrískur einstaklingur. Þetta þýðir ekki að ég ætli að leggjast í rúmið og lognast útaf heldur þarf ég að losa mig fljótt og vel við ýmis verkefni sem liggja á mér og ég hef hingað til sinnt en ætti í raun að vera búin að koma af mér. 

Þrifkonan kom á mánudaginn og Palli sýndi henni aðstæður og svo fór hann út. Hún var byrjuð að taka allt úr gluggunum til að þurrka af áður en hann fór og ég verð að viðurkenna að það geri ég nú ekki einu sinni sjálf, lyfti þessu drasli bara upp og tuskuna undir. Þegar hann kom heim var hann ekki viss um hversu vel þær hefðu þrifið því sama lóin var fyrir framan eldhúsdyrnar og þegar hann fór. Ég bað hann að kíkja undir rúmið, þar lægju aðalsönnunargögnin, jú mikð rétt, það var engin ló undir rúminu og búið að skipta á því og þrífa klósettin. Mikið vona ég að ég fái beiðni um þrif einu sinni í viku samþykkta.

Ég hafði reyndar góðan félagsskap á spítalanum því Gunna Axels vinkona mín lá þar á einkastofu og beið eftir að byrja í kröftugri lyfjameðferð til að lækna hennar sjaldgæfa....en sem betur fer læknanlega....afbrigði af Hodskinseitlakrabbameini. Ég óska að hún muni komast í gegnum næstu daga og vikur af sinni alkunnu glaðværð og baráttuvilja og nái sér að fullu. Ég mun fylgjast með henni og líta til hennar þegar ég get.  Kári er að koma heim af Vogi á morgun, alsæll með vistina og fer svo í framhaldsmeðferð á Staðarfell á þriðjudaginn. Þar verður hann í 28 daga. Hann kemur örugglega oft í heimsókn til mín um helgina og þá kannski líka með litlu krílin.

Ég læt þetta gott heita í bili og vil enda á því að þakka öllu starfsfólkinu á bráðamóttökunni og blóðlækningadeildinni fyrir að vera samviskusamt, klárt, duglegt og yndislegt fólk. Að við skulum ekki sjá okkur sóma í því að borga þessu fólki almennileg laun ætti ekki að viðgangast stundinni lengur. Ég veit ekki hvar ég væri ef þeirra nyti ekki við.....daga og nætur.  


» 28 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 15:42:30 / gislina

Fréttir frá Gillí

Gillí bað mig um að koma því á framfæri að hún er í "klössun" niðri á spítala og er væntanleg aftur í bloggheima á morgun.

Hún var lögð inn síðastliðinn sunnudag með blóðtappa í vinstra lunga og er að jafna sig á því.

kv. Ragna Mágkona


» 15 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 11:38:48 / gislina

Stóla í Laugardagslögin

Þetta er ekki auglýsing.......en ég mæli með:   Speltbrauðinu hjá Oddi bakara. Besta brauðið í bænum.

Mikið væri gott ef neytendamál á Íslandi væru jafn langt á veg komin og opnunartími verslana. Sá auglýsingu í sjónvarpinu frá Húsasmiðjunni sem auglýsti að það væri opið upp á Höfða alla daga til sjö um kvöldið.  Ég hryllti mig yfir þessu og spurði Pál hver í ósköpunum nennti að vinna til sjö á laugardags- og sunnudagskvöldum. Það þykir sjálfsagt að hafa allt opið endalaust, verslanir jafnt sem bari en ef þú þarft að skila eða skipta vörum eru reglurnar jafn margar og búðirnar.....og allar jafn slæmar fyrir viðskiptavininn.

Ég get tekið dæmi um raftæki sem keypt er í júní, tveimur mánuðum seinna bilar tækið og maður fer og kvartar, það er reynt að gera við og ef það tekst ekki þá færðu nýtt tæki....en færðu nýja nótu...ó nei...sú gamla gildir. Þar með styttist ábyrgðartíminn sem þessu nemur.  Ég keypti mp3 spilara í Aberdeen á sínum tíma sem bilaði og ég sendi hann út til Rögnu mágkonu sem fór með hann í búðina. Maðurinn tók gamla spilarann, spurði einskis, náði í annan spilara, prentaði út nýja nótu dagsetta þennan dag og lét Rögnu hafa. Svona á að afgreiða hlutina, ekkert kjaftæði og klúður.

Klárði gærdaginn upp í sófa með tvöfaldan hægri fótinn fyrir neðan sköflung af bjúg, hafði löppina hátt upp á kodda og vonaði að drullan læki úr löppinni svo ég  kæmist kannski í inniskóna. Í staðin fyrir það fékk ég algjört tilfinningaleysi í löppina af röngu blóðrennsli svo ég settist upp og fór að horfa á sjónvarpið. Sá í fyrsta skipti þáttinn „Laugardagslögin“, fannst hann ágætur, Gísli Einars hinn borgneski augljóslega ekki á réttum stað á réttum tíma en Ragnhildur flott að vanda. Lögin voru athyglisverð, mjög ólík og ég bíð spennt eftir næstu þáttum ef þessi keppni ætlar að skila okkur svona miklu af nýjum lögum þar sem höfundarnir eru ekki eingöngu að semja fyrir Júróvisjón. Ég persónulega sendi inn eitt sms á Magnús Sigmundsson, fannst það lag langbest, Andrea flott með nýju tennurnar og Barði með hræðilega sauðkræklingasuðu sem fyrirgefst auðvitað ekki neinum að semja nema kónginum sjálfum honum Geirmundi.

Vil svo endilega að sjónvarpið færi hinum þremur frænku álitsgjöfum koll til að tilla sér á meðan á útsendingu stendur, þau jöguðust þarna fram og til baka fyrir aftan borðið eins og illa kvalin hjörð af harðlífi og bakverkjum.

Næstu tvo tímana ætla ég að nota til að bókhaldsstarfa. Restin af deginum er óljós enda ekki margt hægt að fara með skólausan klumpufót.  Ég þarf að tala við Karítas-konur í dag út af þessu og fá fleiri sprautur fyrir doktor Pál. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 17:11:52 / gislina

Bútar úr daglegu lífi

Halló aftur.  Mamma er búin að hringja og kvarta yfir bloggleysi, hún hefur alltaf áhyggjur ef það koma ekki reglulega blogg en eins og ég sagði við hana þá hef ég ekki mátt vera að því að skrifa. Bæti úr því hér með.Vil byrja á því að biðja ykkur um að fara inn á eftirfarandi slóð http://asdisomar.blog.is/blog/asdisomar/  finna þar í næst nýjasta bloggi UNDIRSKRIFTALISTA og skrá ykkur á hann. Ásdís ætlar að safna 1000 undirskriftum „fjöryrkja“ eins og hún segir sjálf, fyrir sunnudaginn og senda hann til yfirvalda í þessu landi. Ég vissi því miður ekki af þessum lista fyrr en í gær en ég vona að ég geti skilað henni nokkrum undirskriftum. Eins og við höfum áður rætt eru þetta brýn málefni og nauðsynlegt að halda þeim vakandi með þrýstingi á stjórnvöld.

Dagurinn í gær var minn besti í margar vikur, næstum verkjalaus og fær í flestan sjó....eða þannig.  Kári hringdi klukkan 9 um morguninn og það er eins og í hvert skipti sem hann hringir fái ég aukna orku. Hann er ennþá jafn ánægður þarna og hann hringdi svo aftur í gærkvöldi og bað mig að senda sér hreinar náttbuxur, boli og slopp. Ég reddaði þessu í dag, fór með til hans ný föt og hitti þá óvænt Gunna vin minn nuddara sem er að vinna þarna. Ég hef ekki séð Gunna í nokkur ár núna en var mjög glöð að heyra að hann vinnur þarna því þar veit ég að Kári á góðan að.

Náði að rúnta aðeins um bæinn, sækja lyf og kaupa mér lampa í Tekk húsinu. Þegar Palli kom heim þustum við í verslunarferð í Hagkaup í Kringlunni því við vorum búin að bjóða bræðrum mínum og mágkonum, frænda mínum og konunni hans í mat.

Maturinn var óhefðbundinn, borðið var drekkhlaðið af ýmiskonar kræsingum sem við höfum sankað að okkur á ferðalögum okkar um Evrópu síðan í mars. Spænsk skinka, fullt af allskonar fuglapaté, ekta frönsk foie gra, ýmiskonar ostar, brauð, kex, sultur og ávextir. Svo var smávegis af ofnsteiktum kjúkling í kókos- og engifer sósu. Við byrjuðum á foie gra með brauði og rifsberjasultu og smá klettasalati og með þessu opnuðum við ....alvöru kampavínsflösku...sem kjallarabúarnir færðu okkur þegar þau komu heim frá útlöndum með börnin sín þrjú. Þetta var heilög stund og við máttum ekki byrja á þessu fyrr en Palli hafði útskýrt hversu fáránlega dýr matur þetta væri, pínulítill biti í Hagkaup kostaði 2700 krónur. Veit ekki hvort bragðið batnaði við þessar upplýsingar en gott var þetta.....nammi.

Svo var spjallað og allir farnir heim fyrir miðnætti.  En eins og við var að búast var Adam ekki lengi í Paradís því í dag er ég búin að vera mjög illa haldin af rosalegum bjúg á fótunum, sérstaklega hægri fæti fyrir neðan ökkla. Ég á því ekki auðvelt með að ganga mikið svo ég komst ekki í Kolaportið og rétt náði að fara í Kringluna að versla fyrir Kára. Ég ætlaði að biðja pabba hans að gera þetta en þau eru í Búdapest og Ásgeir í Madríd svo ég fór bara sjálf. Eftir skutlið á Vog heimsótti ég Þóru og stelpurnar og þær voru allar mjög hressar. Dásamlegar dúllur þessar stelpuskjátur.

Karítas konur hringdu í gærkvöldi og buðu mér innlögn á líknardeildina í dag. Ég var ekki til í það enda eins og ég sagði henni þá væri þetta búinn að vera besti dagurinn minn í margar vikur, ég mátti ekkert vera að því að fara núna. Umsókninni minni verður því haldið opinni. Ég hef trú á að ég fari inn fljótlega og prófi að búa þarna í eina til tvær vikur. Ég er smátt og smátt að átta mig á því að ég er eiginlega meira og minna ónýt. Ég get varla risið upp af sjálfsdáðum ef ég beygi mig og þessi vökvasöfnun og bjúgur er hreyfihamlandi og veldur verkjum. Það hefur skipt sköpum að geta fengið sprauturnar hjá Páli þegar á þarf að halda og þurfa ekki að bíða eftir hjálp eða bögglast niður á bráðamóttöku. Ég hef verið næstum verkjalaus í dag eða síðan ég fékk sprautu klukkan 9 í morgun. 

Á mánudaginn kemur kona að þrífa hjá mér, ég á von á að þetta verði undarleg upplifun, að hafa ókunna konu hér að skúra og skipta á rúmum, veit ekki hvort ég á að fara að heiman eða skríða út í horn og láta fara lítið fyrir mér. Hún getur verið til hálf fimm ef á þarf að halda en ég vona að það sé ekki svo skítugt hérna að hún þurfi næstum 4 tíma til að skúra, skrúbba og bóna.

Og eins og venjulega er þetta orðið alltof langt svo ég hætti hér.

Vona að þið munið eftir að skrifa undir hjá Ásdísi.


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 22:48:10 / gislina

Frumsýning

Ég spurði manninn minn í dag hvað hann væri búin að gera og segja ef hann væri landsliðsþjálfarinn í fótbolta karla......“ég væri löngu búin að segja upp starfinu og ef ekki þá væri ég núna á leiðinni úr landi“.   Hvað í ósköpunum er að brjótast um í hausnum á þessum annars ágæta manni, ætli hann sjái fram á að fara á atvinnuleysisbætur. Það hlýtur að vera eitthvað mjög slæmt sem tekur við hjá honum ef hann hættir að þjálfa. Ekki búinn að ná öllu út úr liðinu...segir hann, hann stefnir kannski neðar...hver veit.

Annars hef ég lengi stutt þá hugmynd að fá bara Guðjón aftur í jobbið. Hann er eini íslenski þjálfarinn sem er nógu geggjaður til að ná árangri :evil:.

Við vorum að koma heim af frumsýningu á myndinni Syndir feðranna, heimildarmynd um Breiðavíkurheimilið. Ég var nokkuð ánægð með myndina, hún svaraði flestum mínum spurningum um þetta mál. Ég sá meira að segja mynd af Eika heitnum sem dvaldi þarna meðan Þórhallur var við stjórn. Eiki var einn af þessum krökkum sem var erfiður, sennilega í dag greindur ofvirkur en var sendur til Breiðavíkur og kom líklega ekki heill þaðan því honum reyndist erfitt að fóta sig í tilverunni alla tíð síðan. Ég dáðist að mönnunum sem þarna komu fram og sögðu sögu sína um leið og ég hugsaði til þess með hryllingi hversu fáránlegt þetta allt var. Þarna var blandað saman litlum drengjum frá 8 ára aldri fram á unglingsaldur og ég sá fyrir mér elskulegan 8 ára Gabríel Mána sendan burt frá heimilinu sínu, ekki í nokkra mánuði heldur í nokkur ár. Þeir fengu enga samúð, enga umhyggju, bara grimmd, annað hvort eða bæði af eldri drengjunum og starfsfólkinu. Persónulega finnst mér ríkið skulda þessum mönnum bætur þótt það dugi skammt þegar mannslíf eru í húfi.

Ásgeir og Rakel eru farin til Madridar yfir helgina í árshátíðarferð en við Palli eigum von á gestum annað kvöld. Helgin er óskrifað blað, kannski reyni ég að kíkja á nokkrar útsölur og hugi að jólagjöfum því tíminn líður alveg ógurlega hratt.  

Allt sem ég geri er á hálfum hraða og að auki eru dagarnir bara hálfir því ég kemst ekki á fætur fyrr en fyrsta lagi klukkan tíu því ég þarf að verkjastilla mig og oft ná upp svefni eftir truflaðar nætur.  Palli var vakinn klukkan 6 í morgun og krafinn um sprautu, hann stökk á fætur, náði í græjurnar og nálin á kaf í mjöðmina.  Engin áhrif, ég hélt áfram að kvarta og þá kom í ljós að hann hafði tekið vitlaust lyf, ég fékk sem sagt morfín í stað Toradolsins svo hann þurfti að sprauta aftur. Mjög gott að geta bara snúið sér á hægri hliðina og fengið læknisþjónustu.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 23:23:42 / gislina

Saklaust-Fullorðið-Ósanngjarnt

SAKLAUST   – elskar hann mig, elskar hann mig ekki, hann elskar mig, hann elskar mig ekki......  FULLORÐIÐ - kaupa hús, ekki kaupa hús, kaupa hús, ekki kaupa hús..... ÓSANNGJARNT  – gefast upp, ekki gefast upp, gefast upp, ekki gefast upp..... 

 Slæm verkjaköst brjóta andann niður í frumeindir, manni verður sama um allt, nenni þessu ekki lengur, ömurlegt líf.  Á góðum dögum er maður alheill, læknaður, skíturinn horfinn á haf út, nýt hverrar mínútu, lifi eðlilegu lífi. Gerði mér grein fyrir því í dag hversu slæma daga ég hef átt síðustu vikur. Ég losnaði nefnilega við 1,2 lítra af mysu úr brjóstholinu og einn líter af undanrennu úr kviðnum----samlíkingar í takt við útlit innihaldsins. Allt í einu gat ég andað eðlilega, dregið loftið á kaf í lungun og hlaupið upp og niður stigann án þess að hljóma eins og mæðuveik rolla. En eftir átökin fylgdu verkirnir þegar innyflin og kerfið fór að aðlagast breytingunum. Þá kom doktor Páll til skjalanna eins og frelsandi engill og sprautaði mig í rassinn með Toradol.

Hann fékk fyrstu æfingu í gærkvöldi þegar verkirnir gerðu sína hefðbundnu innrás og svei mér þá ef hann er ekki fæddur í hjúkrunarstarfið, ég fann ekki baun fyrir stungunni, það vantaði bara hvíta sloppinn og hlustunarpípuna.Ég fór í lungnasneiðmynd í dag en niðurstöður úr henni lágu ekki fyrir þegar ég losnaði af deildinni. Á tíma hjá Agnesi í næstu viku og fæ þá glænýjar blóðprufuniðurstöður.  Núna er bara að nota dagana áður en vökvasöfnunin fer aftur að líkjast Hálslóni.   

Ég hitti Þórdísi Tinnu í dag í fyrsta skipti, hún var í lyfjagjöf, við rétt náðum að heilsast og hún að segja mér góðar fréttir áður en mér var kippt upp í rúm. Hún lítur svo vel út, með slétt og fallegt andlit og ekki að sjá á henni neina uppgjöf, augljóst samt að hún var sárþjáð. Fór í nálastungur í dag til Dagmarar Eiríksdóttur, það var alveg magnað, tvær nálar í vinstri fótinn til að berjast við bjúg og vökvasöfnun og fljótlega eftir stungurnar fann ég skrýtna tilfinningu í maganum sem færðist svo aðeins til á magasvæðinu, þessu fylgdi örstutt flökurtilfinning.  Svo bara svaf ég enda syfjudagur í dag.   

Kári hringdi af Vogi, hann er alsæll, meðferðin byrjaði strax í gær, hann sér mest eftir því að hafa ekki verið löngu farinn þangað. Þeir voru jákvæðir í hans garð sökum þess að hann vill svo innilega sjálfur leysa málið og er tilbúinn til að ganga alla leið til þess. Hann segir að þarna sé ekkert sjónvarp né útvarp, þeir mega ekki vera með neinar græjur, geislaspilara, ipod, gsm síma eða annað dót, það eina sem má er að lesa bækur. Það má koma með gjafir til hans en þá verður að skilja þær eftir í afgreiðslunni, ég ætla að hringja á morgun og spyrja hvað sleppur í gegn sem gjöf. Myndir eftir krakkana, blóm eða annað, betra að vera viss.  

Enduðum daginn á afmælismatarboði hjá Yngvari og Sigrúnu hér í Hæðargarðinum, Sigrún leysti mig út með boðsmiða á nýju íslensku heimildarmyndina Syndir feðranna sem frumsýnd verður á morgun.

Ætla núna í rúmið að lesa Secret bókina sem ég keypti í dag. Meira hvað bókabúðir eru „góðir“ staðir, ég get alveg gleymt mér við að skoða allar bækurnar sem mig langar að lesa. Keypti líka íslenskan reyfara í afmælisgjöf fyrir Yngvar sem er norskur og í íslenskunámi í HÍ og fékk þá aðra með „frítt“ og valdi mér bókina um Thorsarana og svo einn reyfara á ensku handa mér eftir sama höfund og skrifaði kvenspæjarastofusögurnar. 

 Hvernig var þetta....ætlaði ég ekki að vera farin í rúmið...


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 23:22:07 / gislina

Einn langur

Hef síðustu tvo daga verið að reyna að setja færslu inn á þennan blessaða blog central vef en ekki tekist. Það er augljóslega ekki verið að þjónusta þennan vef af neinum metnaði. Þið hafið flest tekið eftir því að ég set bæði inn færslur hér og á mbl bloggið. Ég verð að segja eins og er að ég er að gefast upp á blog central og mun fljótlega hætta að nota hann. Þið sem eruð hér reglulegir gestir vil ég benda á að skoða síðuna mína á mbl sem er á eftirfarandi slóð  http://www.gislina.blog.is/blog/gislina/ sjá einnig hér til hliðar undir Gillí á Mbl. En eftirfarandi færsla fór í bloggheima seinni partinn í dag:

Er á fullu að finna út hvað næsta skemmtiútspil verður. Erfitt ef verkir standa í veginum en ef verkjavegurinn verður vel ruddur er aldrei að vita hvað mér dettur í hug að gera. Samt ekki fallhlífarstökk, aldrei langað til að prófa það.  Góður matur og bíó er ofarlega á listanum ásamt Berlín eða annari styttri ferð erlendis. Reyna að hitta barnabörnin oftar og fara að huga að helgarferð til Akureyrar.

Var að heyra frétt í sjónvarpinu um langlífi krabbameinssjúklinga. Þar voru að venju talin upp algengustu krabbameinin, brjósta-, blöðru-, lungna- og ristilkrabbamein. Maður verður stundum létt fúll yfir áherslunni sem lögð er á að finna lækningu við þessum krabbameinum meðan önnur eru svo ómerkileg að engin stendur í því að kanna möguleika á lækningu við þeim.  Þarna sem annarsstaðar virðist fjármagn ráða för. Ef einhver finnur upp lyf við gallvegskrabbameini mun þeim hinum sama hvorki auðnast frægð, frami né auður sökum smæðar sjúklinganna í prósentulegu hlutfalli við önnur krabbamein. Til að breyting verði á þarf sennilega eitthvað mikið að koma til eins og t.d. að Bill Gates greinist með sjaldgæft ólæknandi krabbamein og fari í kjölfarið að leggja fé í rannsóknir á þessu tiltekna meini, án þess að ég óski Bill kallinum neins ills. En auðvitað er ég hæstánægð með það sem verið er að gera til að lækna áður nefndar krabbameinstegundir og vona bara að fyrir rest verði fundin upp endanleg lækning við þessari óværu.

Svo er hér eitt sem stuðaði mig talsvert en það var frosíða á nýja Blaðinu um daginn en þar var flennistór mynd af Pétri Blöndal og undir stóð að Pétur ætti að fara að endurskoða heilbrigðiskerfið.  Þetta fannst mér líkast því að hleypa skrattanum í himnaríki. Pétur er klár og mikill stærðfræðisnillingur en hann myndi seint skora hátt á samskiptagreindarprófi. Minn gamli yfirmaður í Kaupþingi var tölfræðisnillingur, sífellt með nýjar hugmyndir í rassvasanum um hvernig hægt væri að græða meiri pening en ef þú kvartaðir yfir laununum og að þau dygðu ekki fyrir framfærslu fékkstu ræðu og útreikning um hvernig þú kæmist svo vel af þessum launum að þú ættir jafnvel afgang til að kaupa þér bíl.....eða jafnvel íbúð. Sparnaður var töfraorðið. Tilfinningar, samúð, samkennd, gjafmildi eða bara blákaldur raunveruleikinn voru ekki hans sterka hlið. Fínn kall samt og fyndinn á köflum.

Það var eins og mig grunaði, mér hefndist fyrir góðan dag í gær og var alveg að drepast í morgun. Var svo heppin að Bergþóra Karítas kona kom í heimsókn fyrir hádegið og sprautaði mig með Torodol. Það vildi líka svo vel til að Palli hafði skroppið heim í efnistöku og var því viðstaddur sprautunina. Þarna fékk hann loksins kennslu í því að sprauta mig svo ég þarf ekki að hringja í stúlkurnar og biðja þær um að koma. Palli segist alveg klár á þessu og svei mér þá ef hann hlakkar ekki bara til að fá að leika doktor Pál öðru hverju. Hann er svo að fara í viðtal til Karítaskvennanna í hádeginu á morgun. Þær vilja ræða við hann og svo virðist sem þær eigi líka að sinna stöðu makans við svona aðstæður. Ég vona bara að hann verði jákvæður og nái að nýta sér það sem þær hafa upp á að bjóða.

Komst í mat til Gunnhildar og síðan í smá innlit í Smáralind þar sem ég leitaði að óléttudeildinni. Ég fékk nefnilega þá brilljant hugmynd að meðgöngudeildin gæti átt buxur sem pössuðu á mig, víðar að ofan þrengri að neðan. Þegar ég er orðin svona þanin þá er ég með svo mikla bumbu að ég get tekið undir hana og fyrir neðan gægjast út niðurlútir spóaleggir. Meðgöngudeildin í Debenhams er víst ekki til lengur svo það náði ekki lengra.  Smáralindarheimsóknin endaði með því að ég keypti mér tvennar Joe Boxer náttbuxur.....heimabuxur eins og þær heita núna, alveg dásamlegar flíkur. Fór svo og gaf blóð í erfðarannsókn og fékk bol að launum.

Keyrði Kára á Vog í morgun, hann var bara hress og hlakkaði til að takast á við verkefnið framundan. Ég heyri að vinir hans hafa verið afar ánægðir með þessa ákvörðun og ætla að styðja vel við bakið á honum þegar hann kemur út aftur.  Það munum við, fjölskyldan hans líka gera.

Nú er nóg komið orðið alltof langt. Verð að fara að sinna öðrum bréfaskriftum...


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 22:31:45 / gislina

Draumráðningin

 Komin heim aftur, stoppaði í 3 tíma á BB (bráðabana) og fór heim mjög ósátt við afgreiðsluna. Ég fór í röntgen af lungunum og í ljós kom að þar er vökvasöfnun sem þrýstir á lungun með þeim afleiðingum að ég er andstutt og mæðin. En því miður þá er þetta bara ekki nógu mikið til að taki því að tappa af svo krabbameins-vaktlæknirinn sem er einhver kona sem ég hef aldrei hitt ákvað að bíða þangað til ég kafna í svefni, ódýrara fyrir ríkið. Ég hef á tilfinningunni að því nær sem dregur áramótum fara ríkisstofnanir að spara. Það má ekki fara of langt fram úr fjárlögum.....skiluru...!! 

Ekki nentu þeir heldur að óma kviðinn, ekki nógu langt síðan þetta var skoðað síðast.....4 dagar....svo eins gott að láta mig vita að ég er ekki orðin ómunarvirði.....Ég kvartaði og spurði hvers konar afgreiðsla þetta væri eiginlega, hvort ekki væri betra, fyrst ég á annað borð lægi þarna, að flikka bara vel upp á mig og senda mig svo heim, fríska og fína......Kandítats-stráksgreyið var alveg í flækju yfir þessu og mér sýndist af háttalagi hans að ráða að hann væri hallur undir mína skoðun í málinu því hann næstum baðst afsökunar og ráðlagði mér að ná sambandi við Agnesi á morgun. Ég vil taka það fram að starfsfólkið á BB er allt hið yndislegasta fólk og ég hef undan engu að kvarta á því sviði.  

Ég sendi drauminn um húsið inn á    http://www.draumar.blog.is/blog/draumar/ og bað um ráðningu, hún kom og er svohljóðandi:

Kæra Gíslína

Þessi draumur þinn er í raun mjög skýr, því húsið sem þig dreymir ert þú sjálf. Hvíti litur hússins táknar þinn innri frið og góð öfl sem umvefja þig. Þrátt fyrir að augun séu lokuð og baugótt þá eru stóru skilaboð draumsins þau að hjálpin er með þér og þú átt eftir að upplifa húsið þitt uppljómað hlýju á ný. Draumurinn er að segja þér að gefa aldrei upp vonina því það sem þú getur gert sjálf með huganum og styrkri hjálp vina, jafnvel þegar vindar blása og regnið dynur á, hleypir geislum sólar að á ný. Sál þín á eftir að eiga sér hlýtt og fallegt hús.

Guð veri með þér og þínu fólki

 

» 13 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 15:16:06 / gislina

Ég tóri

Sæl öll.....vildi bara láta vita af mér.  Er núna á leiðininni á bráðamóttökuna skv. skipun frá Karítas.  Hrönn hjúkrunarkona taldi það óhjákvæmilegt að ég færi sem fyrst í  rannsóknir því ástandið er ekki nógu gott verkjalega séð. Ég er að drepast í verkjum og svo eru lungun líka að versna. Ég fór ekki fram úr rúmi í gær fyrr en klukkan sex og rétt komst því í útskriftarveisluna hjá bróður mínum og mákonu. Til að það tækist þurfti Hrönn að sprauta mig með verkjalyfi nokkrum klukkutímum áður en ég átti að mæta. Veislan var frábær, góður matur og mikið stuð, Halldór bróðir með gítarinn og Lísa söngkona láta ekki svona tækifæri framhjá sér fara til að halda uppi fjörinu. Fór heim klukkan ellefu alveg orkulaus og beint í rúmið.

Er verri í lungunum og þenslunni svo þið heyrið frá mér þegar ég kemst aftur heim af lansanum.

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Klukkan
RSS tengill
Myndabiblían